Ánægjuábyrgð Costco og skilareglur
- Um meðlimaáskrift: Við munum afturkalla og endurgreiða þér meðlimaáskrift þína hvenær sem er ef þú ert óánægður með áskriftina.
- Um varning: Við ábyrgjumst ánægju þína vegna hverrar vöru sem við seljum, og munum endurgreiða þér kaupverðið, með eftirfarandi almennum fyrirvörum – vinsamlegast skoðaðu www.costco.is eða leitaðu til þjónustuborðs okkar varðandi frekari upplýsingar um eftirfarandi gildandi fyrirvara:
- Raftæki: • Costco samþykkir skil innan 90 daga (frá þeim degi sem meðlimur fékk varninginn afhentan) fyrir eftirtaldar vörur, og aðrar sambærilegar vörur: raftæki fyrir neytendur, stærri heimilistæki, tölvur og spjaldtölvur, myndvarpa, tölvuskjái, myndavélar, snjallúr og heilsuúr, leikjatölvur, farsíma (skilareglur eru mismunandi milli þjónustuaðila eftir þjónustusamningi símafyrirtækis)
og MP3 spilara (90 daga hámarks skilafrestir eiga ekki við um lítil heimilistæki fyrir eldhúsið) Áður en þú skilar raftæki sem getur geymt upplýsingar, svo sem tölvur, harðir diskar, símar, myndavélar, spjaldtölvur eða önnur snjalltæki, ber þér að eyða út varanlega öllum þínum upplýsingum af tækinu, þar á meðal að aftengja aðgang þinn og eyða út upplýsingum um aðgang þinn, eyða tengiliðum, ljósmyndum og notkunarsögu. Í þeim tilvikum þar sem slíkt er mögulegt mælum við með því að þú endurstillir hlutinn eins og hann var þegar þú fékkst hann upphaflega í hendurnar. Costco ábyrgist ekki upplýsingar sem þú skilur eftir á tækinu, í þeim tilvikum þar sem þú hefðir getað eytt upplýsingum af tækinu en gerðir það ekki.
- Skartgripir: Við vinnum úr endurgreiðslum innan 7-10 daga eftir að við fáum verðmætin í hendurnar og eftir skoðun gimsteinafræðings Costco á upprunaleika og ástandi, til að tryggja að varningurinn sé ekki skemmdur eða að búið sé að breyta honum með einhverjum hætti (t.d. búið að minnka eða endurstilla varninginn). Meðlimir sem skila demöntum sem eru yfir 1.00ct verða einnig að skila inn öllum upprunalegum pappírum sem fylgdu vörunni (IGI og/eða GIA vottanir) þegar viðkomandi leggur fram kröfu um endurgreiðslu.
- Verðmætir málmar: Ánægjuábyrgð Costco og skilareglur gilda ekki um verðmæta málma. Það hefur þó ekki áhrif á lagaleg réttindi þín. Ef þú ert neytandi, geta þessi réttindi falið í sér réttinn til þess að skila gullstöng gegn endurgreiðslu, eða réttinn til þess að fá aðra vöru eða verðfrádrátt, ef verðmæti málmurinn uppfyllir ekki kröfur um gæði né er eins og honum var lýst, eða ef hann er ekki í samræmi við neitt sýnishorn. Réttindi þín taka mið af þeim tíma frá því er þú keyptir gullstöngina og hvers eðlis vandamálið er.
- Sígarettur og áfengi: Costco samþykkir ekki skil á sígarettum eða áfengi í þeim tilvikum þar sem slíkt er óheimilt á grundvelli laga.
- Endurgreiðsla á vörum með takmarkaðan líftíma, seldar með vörusértækri takmarkaðri ábyrgð, verða hlutfallslegar.
- Sérpantaður varningur, sérútbúinn varningur og uppsettur varningur: Ánægjuábyrgð Costco og skilareglur eiga ekki við um sérpantaðan varning, sérútbúinn varning og uppsettan varning, en það hefur hins vegar ekki áhrif á lagaleg réttindi þín. Ef þú ert neytandi, geta þessi réttindi falið í sér skilarétt á varningnum gegn endurgreiðslu eða til þess að fá aðra vöru eða lækkun verðs ef varningurinn er ekki í viðunandi gæðum og eins og honum var lýst, eða ef hann er ekki í samræmi við sýnishornið sem veitt var af vörunni. Réttindi þín taka mið af því hvenær þú keyptir varninginn og eðli vandamálsins.
Costco ábyrgðin hefur ekki áhrif á lögbundin réttindi sem þú gætir átt.
- Hvernig á að skila: Til þess að fá endurgreiðslu á vöruhúsakaupum strax skaltu einfaldlega skila varningnum þínum í einhverju af Costco vöruhúsunum.
- Ánægjuábyrgð Costco er ætlað að tryggja að þú sért ánægður með allar vörur sem þú kaupir af okkur. Hinsvegar starfrækir Costco ekki „sölu- eða skilastefnu“ fyrir miðlara og Costco ánægjuábyrgðin ætti ekki að vera notuð af miðlurum sem vilja skila aukalegum birgðum sem þeim hefur ekki tekist að selja. Við áskiljum okkur rétt til þess að hafna beiðni um endurgreiðslu þegar við teljum viðkomandi vera að misnota ánægjuábyrgð Costco með þessum hætti. Þetta hefur ekki áhrif á lögbundin réttindi þín.
- Þessi ánægjuábyrgð Costco gildir aðeins um meðlimi sem eru meðlimir þegar endurgreiðslan fer fram, en það hefur ekki áhrif á lögbundin réttindi þín.